Landbrot ehf. hrossaræktarbú er félag sem stofnað var árið 2009 utan um hestaeign og hrossarækt Arnars Bjarnasonar og Önnu Maríu Pétursdóttur sem búsett eru á Seltjarnarnesi. Hrossin okkar eru kennd við Þykkvabæ I í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu.
Hrossarækt okkar byggir fyrst og fremst á tveimur ættmæðrum. Annarsvegar, 1. verðlauna hryssunni Freyju frá Prestsbakka (IS1993285026), dóttur heiðursverðlaunahryssunnar Gyðju frá Gerðum (IS1982286002) og stóðhestsins Gnýs frá Hrepphólum (IS1988188170) og hinsvegar 1. verðlauna hryssunni Lyftingu frá Þykkvabæ (IS2006285260) sem er undan Jörp frá Þykkvabæ (IS1996285260) og Þokka frá Kýrholti (IS1997158430).
Ræktunarmarkmið okkar er að rækta léttstíg hross sem eru sjálfberandi í reið, með allar gangtegundir og góðan vilja. Hvað varðar byggingu hrossa, þá leggjum við mesta áherslu á háttsettan háls og herðar, öflugt bak og lend og gott samræmi. Varðandi eiginleika þá er ræktunarmarkmið okkar að rækta alhliðageng hross, með mjúkt tölt og afburða geðslag.